Mynd af vellinum
Lið 1
vs
Lið 2

Liverpool á móti West Ham

Anfield, Liverpool
27. febrúar, 2026 -
2. mars, 2026
Sæti : 20
Verð
209.900 kr.
-
249.900 kr.
🔴 Liverpool vs West Ham – Anfield upplifun sem lætur hjartað slá hraðar 📅 27. febrúar – 2. mars 2026 ⚽ Liverpool vs West Ham – Anfield Komdu með og upplifðu hávaðan, lætin og kraftinn á Anfield þegar stjörnuprýtt lið Liverpool tekur á móti West Ham – í hörkuleik þar sem ekkert er gefið eftir! Liverpool hefur verið á toppnum í ensku úrvalsdeildinni undanfarin ár, og liðið iðar af hæfileikum – Salah, Van Dijk, Wirtz, Szoboszlai, Frimpong og fleiri halda áfram að heilla áhorfendur með hraða, leikgleði og óstöðvandi sókndjöfli. En West Ham kemur ekki til að leggja sig þessi hörkutólfar frá austur-London eru þekktir fyrir baráttuvilja, líkamlegan leik og tryggan stuðning. Liðið hefur byggt upp öflugan hóp og á alltaf hættu á að stríða toppklúbbum – og þeir hafa ekki alltaf farið tómhentir heim frá Anfield. ⚔️ Einvígi Liverpool og West Ham Þrátt fyrir að Liverpool hafi haft yfirhöndina í sögulegu samhengi einvíganna, þá hafa leikir þessara liða oft verið bæði spennandi og markasæknir. West Ham hefur margsinnis verið nálægt því að stela stigum á Anfield og síðustu tímabil hafa leikir liðanna verið opnir, hraðir og með mörgum færum beggja vegna. Það er alltaf einhver neisti í loftinu þegar þessir klúbbar mætast. 🔥 Lætin á Anfield Anfield verður á suðupunkti þegar hömrunum úr London er skorað á hólm. „You'll Never Walk Alone“ hljómar yfir völlinn, stuðningsmenn Liverpool bjóða upp á alvöru fótboltastemningu og þú færð að vera hluti af þessari mögnuðu upplifun – með hjartað í hálsinum frá fyrstu mínútu. 👀 Sætin á leiknum – New Anfield Road Stand seating: Level 1 Upper Tier Padded seats (Block AM1/AM7) 3 klst. aðgangur fyrir leik og 1 klst. eftir leik Pre-match complimentary street food Drykkur í hálfleik innifalinn (bjór, vín eða gos) Leikdagsdagskrá innifalin Afþreying fyrir leik Svo mætir LFC Legend fyrir leik og heilsar upp á stuðningmenn 209.900 kr. á mann miðað við 2 saman í herbergi 249.900 kr. á mann miðað við einstakling í einbýli Staðfestingargjald: 50.000 kr. á hvern farþega Lokagreiðsla: Greiðist að fullu 8 vikum fyrir brottför ✅ Full endurgreiðsla ef ferðin fellur niður af okkar hálfu ℹ️ Premier Trips áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki. ⚽ Leikdagur: Óstaðfestur Athugið að enska knattspyrnusambandið staðfestir nákvæman leikdag um það bil 7 vikum fyrir leik. Leikurinn getur færst

Innifalið

✈️ Flug með EasyJet til og frá Manchester – skattar og gjöld innifalin 🧳 Handfarangur + Bakpoki 🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á Novotel city center 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool 🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool – Aston Villa (VIP Brodies lounge anfield)

ETA rafræn ferðaheimild til UK

Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.

gov.uk
Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.

Kostnaður

Rafræn ferðaheimild (ETA) kostar £10 á mann.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.

Áður en þú byrjar umsókn

Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:

Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.

Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:

Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
Ef þú getur ekki notað APP þá má sækja um hér.
Almennar upplýsingar um rafrænu ferðaheimildina (ETA) má sjá hér.
Premier Trips